Handstöðuáskorunin vekur athygli sem er bara skemmtilegt. Það var birt viðtal við yogadísina í gær 20-3-2015 í Fréttatímanum já um þessa pínu klikk en skemmtilegu áskorun sem ég er með á instagramminu undir #handstada365 …. kíktu það endilega á .. hastagið #handstada365 á Instagramminu eða inná facebook síðunni minni, þar getur þú séð allar 162/365 myndirnar. Nú ef þú ert pínu forvitin að sjá viðtalið og kynnast því afhverju ég er jógakennari í dag og hvað ég er að fást við!
Á blaðsíðu 34 er viðtalið.. er bara sátt við útkomuna! Munið krakkar að allir geta stundað jóga og jóga er fyrir alla konur og karla í hvaða formi sem er!
Morgunmaturinn svona til hátíðarbrigða setti ég Thaini / sesamsmjör útá grautinn minn sem gerir allt svona “creamy” og notalega mjúka stemmingu í bragðið. Skálin mín fallega með ॐ OM ॐ tákninu er frá yndislegri jógasystir Áslaugu Höskulds sem er snillingur í keramikinu.
http://www.frettatiminn.is/tolublod/20-mars-2015/
Myndina fyrir Fréttatímann tók Haraldur ljósmyndari. Veðrið var undurfagurt og himin fallega blár. Þetta verður handstöðumyndin mín í dag – á #handstada365 hver er þín mynd? Taggaðu þig við #handstada365 og leiktu þér…. finndu “blissið” eða ljóman sem myndast um allann líkamann þegar þú ferð í viðsnúna stöðu. Komdu í Gerplusalinn til mín og lærðu undirstöðuna og jógastöður sem undirbúa þig fyrir handstöðu ef þú ert ekki örugg eða öruggur!
Í nóvember síðastliðnum hafði RÚV eða Kastljós komist að þessu uppátæki hjá mér og birti einnig smá innskot í Kastljósi. Þið getið kíkt á það hér;
http://www.ruv.is/frett/ein-handstada-a-dag-i-365-daga
Taggaðu þig við #handstada365 og leiktu þér…. finndu “blissið” eða ljóman sem myndast um allann líkamann þegar þú ferð í viðsnúna stöðu. Komdu í Gerplusalinn til mín og lærðu undirstöðuna og jógastöður sem undirbúa þig fyrir handstöðu ef þú ert ekki örugg eða öruggur!
J A I B H A G W A N
ॐ GYÐA DÍS ॐ