Þá gæti verið sniðugt fyri þig að skella þér á jóga- og hráfæðisnámskeið…. 3 tímar fyrir lengra komna jóga og jógínur. Leyfðu þér að fara á hærri hæðir og upplifa, finna ynnri frið og kærleik og ást til sjálfrar þín 🙂
Om Namo Bhagavate Vasudevaya
Kærleiksmantran mín og þín 🙂
Alltaf alltaf kem ég sjálfri mér meira og meira á óvart þegar ég er með þessi vinsælu námskeið hversu mikil dásemd það er að vera og njóta með ykkur. Já kemur á óvart hversu hrákökurnar og konfektið er alltaf brjálæðislega gott hummmm 🙂 þrátt fyrir að hafa gert þetta margoft aftur og aftur bragðast alltaf betra og betra. Langar þig að vera með á næsta námskeiði sem verður um helgina og já ég ætla vera með það í Gerplu salnum í kópavognum. Fallegur speglasalur með góðu rými og stærðar eldhúsi svo við getum athafnað okkur þar og bragðað á dásemdar safa ásamt dýrindis hráfæðiseftirrétti…. hvað er það sem þig langar til að smakka núna? Svo er Salarsundlaugin á sama stað svo hægt er að skella sér í pott og gufu á eftir!
Kannski er þetta eitthvað fyrir þig? Kíktu á og hafðu samband, sendu mér bara tölvupóst [email protected] eða á facebook https://www.facebook.com/gydadis?ref=hl
Anda – finna – sleppa – slaka og NJÓTA.