Já áskorunin er í fullum gangi og nú síðastliðið mánudagskvöld kom stutt viðtal við mig í Kastljósinu.. og myndbrot af þessu skemmtilega uppátæki mínu 🙂
Allt er eins og það á að vera… vertu með og prufaðu – hvet ykkur til dáða. Það er verið að kenna handstöðuna víða t.d. í jógasölum og oft eru það sérauglýst námskeið… svo gætir þú alltaf kíkt á mig í Gerplusalinn hér er tímataflan;
Mánudags- miðvikudags og föstudagsmorgnar kl.: 6:30-7:30 Prana Power Yoga
Fimmtudagskvöld kl 19:30-20:45 Prana Power Yoga blöndum oft Yin og Restorative yoga með!
Laugardagsmorgnar kl: 8:30-10:00 Prana Power Yoga – Armabalancing og fleira.
Hér er myndbrotið … leikið ykkur krakkar – finnið barnið í ykkur og þig getið þetta alveg!
Jai bhagwan
Gyða Dís
http://www.ruv.is/frett/ein-handstada-a-dag-i-365-daga