Hey þetta er svo skemmtilegt – Jóga já hvað gerir jóga fyrir þig hefur þú pælt í því? Jóga er að stíga út úr huganum og inní auðmýktina – og finna að öryggið þitt kemur innann frá!
Jebsí dúdí day akkúrat en hér setti ég saman myndband um höfuðstöðuna reyndi að tala inná til að leiða inn kíktu á þetta dæmi!!! Er aðeins að leika mér með upptökur á jógastöðum. Þetta er til dæmis frekar krefjandi staða sem þú getur vel byrjað að æfa þig á heima upp við vegg. Kannski ég haldi þessu áfram og laga jafnvel hvað ég segi og hvernig ég tala hahahaaaa finnst þetta alltaf svolítið aumt að heyra mann sjálfan tala
en svona er þetta ég heyri mig ekki tala í jógatíma ég bara flæði áfram og allt gerist – já jóga gerist akkúrat eins og núna.
Ávinningurinn er gríðarlegur:
- Svissar blóðflæðinu, hreinsar til í sogæðakerfinu, höfuð og andlit fá klikkað gott nýtt og ferskt útlit og súrefni og blóð.
- Blóðstreymi eykst upp til heila og örvar heilastarfsemina ( hugsaðu þér ) bætir minni og einbeitingu
- Kemur jafnvægi á innkirtlastarfsemina, skjaldkirtil g kalkkirtla og efnaskiptin komast í betra jafnvægi
- Frábært að gera til að vekja athygli á þér í partý
já alveg rétt t.d. eins og ég geri í myndbandinu, fara í splitteygju með fætur – krossleggja fætur og fleira skemmtilegt!
- Örvar ónæmiskerfið og styrkir hjartað, æðakerfi og sogæðakerfi – LOSAR OKKUR VIÐ BJÚG
- Styrkir kviðvöðva gríðarlega, líffæri kviðarhols, æxlunafæri, endurnærir kynkirtla og bætir kynlífið með höfuðstöðunni
- Bætir meltingarkerfið og hreinsum til í þörmunum og losar harðlífi. Líkamshiti eykst.
- Styrkjum algerlega miðjuna okkar, kviðvöðva og ef við höldum í pínu stund farin að ná jafnvæginu vel þá getur þú byrjað á að færa fætur í splitstöðu báðum megin og svo getur þú prufað að fara upp í vinkli og leika þér að vinkla niður og halda og aftur upp og svo koll af kolli….
- Gefur unglegt útlit og æskuþrótt.
Mótteygjan er barnið – alltaf að fara í barnið eftir höfuðstöðuna og slaka og taka á móti gjöfinni “umbreytum byrðum þeim sem við berum á herðum okkar í frelsi og léttleika með því að fara í höfuðstöðuna”
Krakkar sjáumst á jógamottunni… njóttu dagsins vúps njóttu í höfuðstöðunni já hey og músikin eða lagið sem hljómar í bakgrun er yndisleg… Þetta er lagið Bliss I wish you were there kíktu á: https://www.youtube.com/watch?v=3f3KhR5oDC4
Jai bhagwan.