Júní áskorun er kvið áskorun á Instagrami undir #kviðaskorun #juniaskorun í boði @gydayogadis og takið myndir fyrir og eftir. Þið megið alveg ráða því sjálf hvort þið skellið inn mynd inná #myndfyrirogeftir eða hvort þið sendið mér mynd og við setjum þær svo saman þegar við klárum námskeiðið í lok júni.
Þetta er bara gaman. Ég mun birta nokkrar kviðæfingar í hverri viku á instagraminu mínu @gydayogadis fyglist endilega með mér og “follow” til að fá upplýsingar beint í æð. Það verður munur trúðu mér en kviðæfingar verður þú að gera daglega í 10 mínutur í senn með hléum 🙂 Hvernig líst þér á?
Ég er þekkt fyrir ansi marga vitleysuna og þetta er ein af þeim. Þið munið eflaust eftir handstöðuáskoruninni…. ég stóð á höndum uppá hvern einn og einasta dag í eitt ár og tók myndir hér og þar um bæin inni og úti jafnt á Íslandi sem erlendis og póstaði inná Til þess meðal annars að geta verið í höfuðstöðunni í 5 mínútur þarf gríðarlegan kviðstyrk…. þegar þú ert farin að ná því þá gerum við meðal annars ýmsar kviðæfingar í höfuðstöðunni.
Verðlaunin sem í boði eru er hreinlega þú sterkari þú til þess að gera það sem þig langar að gera dags daglega. Bakverkir t.d. í mjóbaki er oftar en ekki vegna lélegra kviðvöðva. Arm balance stöður t.d. handstaðan þú þarft að hafa góðan kvið, 8 pack, hliðarkviðvöðva, bakkviðvöðva.
Leikurinn er einfaldur þú tekur mynd af þér fyrir og eftir. Fylgir mér á Instagramminu ég mun nefnilega ekki pósta á blogginu mínu né á Facebook aðeins á Insta.
JÚNÍ ~ JÚNÍ ~ JÚNÍ ~ er mánuðurinn…. vertu með ~ þú ert aldrei of gamall/gömul né of ung eða ungur til að hefja leikin.
Er orðin megaspennt að byrja 1. júní 2016.
Jai bhagwan