Gleðilegt nýtt ár til þín og þinna. Þakka yndislegar stundir með ykkur á liðnu ári og tek svo fagnandi á móti nýja árinu með opið hjarta og von um að allir geti átt góðar stundir við góða heilsu. Hér ætla ég aðeins að minna ykkur á tímatöfluna hjá mér í Gerplusalnum. Ætla einnig að bæta við tímum og hefjast handa með Yoga & Ayurveda námskeið n.k. miðvikudag 6. janúar 2016, kl.: 19:30-22:00 sjá aðeins neðar upplýsingar.
Viðbót af tímum… koma inn síðar í Janúar;
Mánudagar, Miðvikudagar og Föstudagar kl: 9:00-10:00
Þriðjudagar og Fimmtudagar kl: 8:30-9:45 & kl: 10:00-11:00
Fimmtudagskvöld kl: 20:15-21:30
Ef þú ert með óskatíma þá endilega láttu mig vita!!! Er að byggja upp tíma og töflu fyrir þig, já JÓGA FYRIR ÞIG
Grænn mánuður ~ Ertu með? Ég mun pósta á síðuna söfunum okkar og hvað við b0rðum svona nokkurn vegin hér getur þú séð safan sem við Valli gerum á hverjum degi; http://gydadis.is/graeni-safinn-okkar-valla/
NÁMSKEIÐ:
Yoga & Ayurveda námskeið 6 – 17 janúar n.k. Hefjum námskeiðið á miðvikudaginn 6. janúar kl: 19:30-22:00 hér http://gydadis.is/namskeidsgledi-hja-yogadisinni/ getur þú lesið þig til um námskeiðið en tímarnir eru lokaðir og skyldumæting í miðvikudags- og mánudagstíma. Frjáls mæting í opnu tíma sem eru í töflu á meðan námskeiði stendur.
Jai bhagwan.