Hefur þú velt því fyrir þér hvort sé betra fyrir þig að sofa á hægri hliðinni eða vinstri hliðinni?
Samkvæmt Ayurveda er vinstri hlið líkamans allt öðruvísi en hægri hliðin 🙂 hér stikla ég á nokkrum ástæðum fyrir því að sofa á vinstri hliðinni. Meðal annars vegna þess að það auðveldar líkamanum alla vinnslu í ristli, sogaðakerfinu og miltanu. Hjartað dælir auðveldara og hringrásin aftur til hjartans verður auðveldara, gallið og gallfæði fær enn meiri og betri hvatningu. Kíktu á myndbandið og skoðaðu þessa mynd sem er fyrir ofan greinina.
Í þessu myndbandi hér er útskýrt á hvaða hlið er best að sofa en hvernig þú sefur hefur áhrif á starsemi meltingarfæra þinna. Spurningin er auðvitað hvor hliðin gerir gæfumuninn – þyngdaraflið hefur nefnilega áhrif. Prófaðu þig áfram í kvöld og sjáðu hvernig þér líður þegar þú vaknar. Þegar við vöknum eigum við að vera heilbrigð, verkjalaus og tilbúin í daginn…. nýjan dag og ný þú eftir góða hvíld.
Næsta Ayurveda námskeið hefst á miðvikudaginn 14. september n.k. kl: 19:00 ~ fjórar vikur og opið í alla tíma í tímatöflu í Shree Yoga.
Jai bhagwan