Heiðraðu Guru(inn) hið innra með þér, alla kennarana á leiðina, öldungana og forfeðurna. Munum að þakka fyrir okkur á hverjum degi, munum að það er ekki sjálfgefið að geta gert það sem þig langar til að gera hverju sinni. Þakka fyrir að vakna á morgnanna í hraustum líkama. Getað stundað hreyfingu og stundað vinnu, sinnt börnunum og fölskyldu okkar. Sinnt foreldrunum og samfélaginu. Þakkaðu fyrir súrefnið og þakkaðu fyrir allar gjafirnar sem móðir jörð færir okkur á hverjum degi. Við erum algerlega háð móður jörð Prakriti (sanskrit). Þökkum fyrir loftið, súrefnið, rigninguna, birtuna, ilminn, náttúruna og alls sem er í umhverfinu. Þökkum fyrir líkama okkar og heilsu. Líkaminn sem þú ert í akkúrat núna í þessu lífi er sá sem þér var skaffaður og ber okkur að heiðra, virða og hlusta á hann, hvíla þegar hvíldar er þörf og fóðrann af hollum og góðum mat. Sleppa allri unnri matvöru og svo að endingu nuddaðu líkamann þinn uppúr góðri olífolíu á hverju kvöldi eftir húðburstun t.d.
Þú getur notað hvaða góða olífuolíu sem er og klikkað gott að hita hana aðeins upp og bera á líkamann. AYURVEDA fræðin sem ég er auðvitað heilluð af eins og svo mörgu sem tengist vísundum. Sesamolía er dásamleg ef þú átt hana er gott að nudda uppúr henni.
Hefur þú prufað Thai Yoga Bodywork Massage? Nei þá er tækifærið núna. Það er svo ótrúlega gaman og gefandi að blanda þessu saman Jóga og Thai Yoga nuddinu saman. hér eru t.d. upplýsingar um ávinningin fyrir íþróttafólk hlaupara ofl hversu fljótt þú jafnar þig eftir mikið álag með teygjunum og nuddinu.
http://www.active.com/fitness/articles/the-benefits-of-thai-yoga-massage
Og önnur grein ef þig langar til að lesa meira um ávinninginn og hér er talað um hvað Thai Yoga Bodywork Massage styrkir beinin!
http://www.massagetoday.com/mpacms/mt/article.php?id=14923
Grunnhugmyndin á bak við tælenskt nudd er að auðvelda flæði orku um líkamann. Þessu svipar til jógaheimspekinnar en samkvæmt henni streymir lífsorkan (Prana) um orkubrautir (Prana Nadis) í líkamanum. Í tælensku nuddi eru tíu orkubrautir tilgreindar og á þeim eru mikilvægir orkupunktar sem ná til allra líffæra. Með því að nudda þessa punkta er hægt að meðhöndla hina ýmsu sjúkdóma og lina sársauka. Truflanir á orkustreymi líkamans leiða til sjúkdóma. Nuddið losar þessar stíflur, örvar flæði lífsorkunnar og endurnærir líkama og sál. Ólíkt vestrænu nuddi snýst tælenskt nudd ekki bara um líkamann sjálfan heldur einnig hinn svokallaða orkulíkama. Í vestrænu nuddi eru vöðvarnir nuddaðir en í tælensku nuddi er þrýst á orkupunkta í staðinn. Einnig er mikið erum teygjur líkt og í Hatha jóga og er nuddið því stundum kallað jóganudd.
Tælenskt nudd hefur átt auknum vinsældum að fagna undanfarin ár enda hefur áhuginn á óhefðbundnum lækningum farið sívaxandi. Tælenskt nudd er m.a. talið hafa góð áhrif á astma, hægðatregðu og vöðvabólgu svo fátt eitt sé nefnt auk þess sem það er notað til endurhæfingar eftir hjartaáföll og heilablóðföll. Vestrænir læknar sjúkraþjálfarar, nuddarar og jógakennarar streyma til Taílands til þess að læra nudd og bæta við þekkingu sína enda tælensk nuddmeðferð spennandi valmöguleiki við hefðbundnari læknismeðferðir.
Kynningarverð fyrir þá sem vilja prufa Thai Yoga Bodywork Massage hjá yogadísinni Lausir tímar;
Föstudag kl: 8:30
Mánudag kl: 8:30
Jóga nudd og jóga teygjur. Klikkað gott og gefur flotta orku og súrefnisflæði og þú ert fljót eða fljótur að jafna þig eftir áreynslu eða íþróttaálag.
Jógatímarnir eru massívir næstu tvær vikurnar eða þar til yogadísin fer í frí og endurhleðslu og lærdóm til meistarans um miðjan nóvember.
Þriðjudaga og fimmtudagar — hádegisjóga 12-13
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl: 6:15-7:15
Miðvikudagskvöld 4/11/15. Armbalance – námskeið kl: 19-22:00 nánari uppl síðar
Föstudagur kl: 18:30 YIN YOGA & YOGA NIDRA
LAUGARDAGUR – jógaþrek, power yoga,
bodywork mobility og jógastöður kl: 8:30-10:00
Jai bhagwan.